Kertaframleiðsla

ÚtikertiKerti sem framleidd eru hjá PBI eru gerð úr 100% brennsluvaxi og svo lituð. Það gerir að verkum að brennslutími kertanna er mjög langur og kertin haldast falleg þar sem lítið sem ekkert rennur til á þeim. Yfirliturinn er úr harðara vaxi en kjarninn og því myndast skál í kertinu sem kemur í veg fyrir að kertið leki niður.

Kerti hafa verið framleidd hjá PBI svo áratugum skiptir. Saga kertagerðarinnar hefst þegar Iðjulundur sem þá hét hóf framleiðslu á hefðbundnum kertum og útikertum. Þessi framleiðsla hefur þróast og aðferðir verið einfaldaðar með árunum en þó er alltaf haldið í þá hugsun að framleiða hágæða kerti.

Útikerti frá PBI fást í öllum helstu kjörbúðum landsins en einnig er hægt að nálgast allar gerðir í búðinni hjá okkur .

Hvít kertiKerti sem eru í boði frá PBI eru:

Útikerti

30 cm há kerti

36 cm há kerti

Lurkakerti

Krullukerti

Jólatrés kerti

Ilmkerti margar tegundir

Sérframleiðum eða pökkum að ykkar óskum

Ilmkertin eru vinsæl vara í fjáraflanir

Kerti bland